Ađalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Stefán B Heiđarsson
  • Símanúmer: 8643832

Leit

Klukkan

Atburđarteljari

Undirsíđukubbur

Síđasta bloggiđ!

01. maí 2011 klukkan 22:03
Þessa viku gekk hreyfingin vel fyrir sig. Samtals hljóp ég 42 km á 5 dögum sem ég hef aldrei gert áður. Ég fór líka í ræktina sjálfur og æfði eftir prógrammi frá þjálfara mínum. Svo í gær eftir vigtun fór ég í sund! Ég fór niður um 1,4 kg og á eftir 4,4 kg í drauma, drauma töluna mína! Ég vona að ég verði sem léttastur þegar ég fer á lansa í lok maí. Svo er ég farinn að horfa til þess að fara í lýtaaðgerð en það kostar sitt svo það er spurning hvernig það verður fjármagnað! Ég hef ákveðið það að blogga ekkert meira hérna á síðunni minni. Tel það komið nóg. Einnig hef ég engin viðbrögð fengið við bloggin mín undanfarið svo mér finnst engin ástæða til að blogga meira. Þeir sem eru með aðgang að fésbók minni geta fylgst með mér þar hér eftir. Eftir örfáa daga mun ég svo læsa þessari síðu þannig að engin kemst inn á hana nema fá aðgang sem ég gef ekki hverjum sem er. Ég þakka þeim sem hafa litið hérna inn undanfarið og nennt að lesa bloggin mín! Ég vona að þú sem þetta lest hafir það gott og takk fyrir að nenna að lesa krassið mitt! Farðu vel með þig!

örblogg

25. apríl 2011 klukkan 17:07
Í síðustu viku hreyfði ég mig fyrstu þrjá dagana. Svo kom ládeyða í mig með þunglyndi í ofanálag. Aðeins 15 km af hlaupi þá vikuna og tveir tímar hjá þjálfaranum. Fór upp um 0,1 kg á vigtinni en átti von á að fara hærra miðað við ástandið! Svo það er innan skekkjumarka! Hafið það gott í dag!

Já og aftur, já!

16. apríl 2011 klukkan 14:45
Ég var ekki ánægður með vigtunina á laugardaginn. Enda ekki gaman að blásast út um 2,5 kg á þremur vikum. Svo ég ákvað að á sunnudeginum að blása til sóknar. Á mánudaginn fór ég í þjálfun til þjálfara míns. Það var mjög góður tími. Eftir þann tíma ákvað ég að hlaupa í eina klukkustund. Fyrst af stað gekk allt vel! Svo fann ég fyrir smá sting í aðra löppina en hugsaði með mér að þetta væri ímyndun hjá mér. Svo ekki var ég að spá meira í þessu og hélt áfram. Þegar fjórtán mínútur voru liðnar fann ég þennan mikla sting og um leið sársauka. Þannig að ég sló strax á stopp takkann. Fann sársauka og bölvaði því hressilega. Langaði mikið til þess að kýla í mælaborðið á hlaupabrettinu. En á undarlegan hátt tókst mér að halda aftur af mér. En ég varð reiður og bölvaði mikið bæði upphátt og í hljóði. Mig grunaði strax að um tognun væri að ræða. Ég vildi ekki tala við lækni um þetta því það er óþarfi að trufla þá með svona skiteríi eins og með sprautuna hérna í janúar. En þá fékk ég lestur um að ég væri að trufla blessaðan lækni með skiteríi sem ein sprauta er. Svo ég ákvað það strax að ég færi ekki til læknis hér nema dauður eða sjárþjáður. Þannig að ég lét það eiga sig að panta tíma. Daginn eftir ákvað ég að fara í ræktina og reyna að hlaupa eins mikið og ég gæti. En til vara hafði ég með mér sundskýlu og gleraugu ef ég skyldi ekki getað hlaupið. Það vildi mér til að þarna var læknir sem er góður félagi og sá hann að ég var ekki eins og ég á mér að vera. Svo hann fiskaði hvað væri að og ég sagði honum það. Hann sagði að þetta væri tognun og sagði mér hvernig ég skyldi æfa mig. Fór ég eftir því. Gekk fyrst í 10 mín og hljóp 40 mín og byrjaði í 7,5 og náði að spretta í 9,0 og síðustu 10 mín fór í að ganga sig niður. Þetta veitti mér von um að þetta væri ekki eins slæmt og ég hélt í fyrstu! Á miðvikudaginn fékk ég góðan tíma hjá þjálfara mínum. Við vorum að æfa efri hlutann. Í lokinn hljóp ég 3 km en gekk síðustu 5 mín. Ég ætlaði svo sannarlega að æfa mig á fimmtudeginum. En mér fannst tíminn knappur því ég þurfti að fara í útskrift klukkan sjö og fannst mér ég ekki hafa nógu rúman tíma til að þjálfa mig. Svo ég tók bara frí í staðinn. Í gær gekk ég í 10 mín áður en ég fór að hlaupa. Ég byrjaði á því að hlaupa á 8,0 í 10 mín og svoleiðis alla leið upp í 9,5 og þá gekk ég í 10 mín og síðustu 10 mín hljóp ég á 10,0 og það var allt í lagi. Mataræðið var svona upp og ofan en samt í þokkalegu horfi. Eina sem ég saknaði þessa viku var að geta ekki hlaupið meira og lengra út af fætinum. Fyrir vigtunina í dag hafði ég sett mér það markmið að fara úr 97,9 í 97,6 en því miður það gekk ekki eftir því ég komst aðeins i 97,7 og ég er ekki glaður með það því ég náði ekki markmiði mínu. Markmið fyrir næstu viku er að komast í 97,4 annað væri plús eða bónus! Þar sem skólinn er búinn get ég farið að einbeita mér meira að hreyfingunni og því sem ég er að gera. Ég á reyndar eftir að klára gítarnámið en ég fer í próf í fyrstu viku maí mánaðar og á að vera laus við allt saman 13 maí. Þá get ég einbeitt mér að hreyfingunni og kannski farið að slá hvíta litla skrattann. Ég er ekki búinn að skrá mig í Reykjavíkurhlaupið. Það blundar í mér að fara í hálft maraþon sem er 21,1 km og það er mikið stökk frá 10 km hlaupi. En ég tek ekki ákvörðun um þetta fyrr en í maí. Svo ætla ég að reyna að ná af mér mestum kílóum fyrir næstu tékkun á lansa sem er 31 maí. Ég er farinn að líta í kringum mig hvað varðar lýtaaðgerð á mér. Það er bara enn á byrjunarstigi en vonandi get ég farið í þetta áður en þetta ár lýkur. Ég vona svo að ég verði góður í fætinum þannig að ég geti hlaupið lengra en 8 km. Ég vil helst komast lengra en það og svo mættu veður guðirnir fara að láta góða verðrið koma þannig að hægt sé að hlaupa úti og anda að sér þessu ferska lofti sem við Íslendingar erum heppnir að eiga. Jæja ég ætla að láta þetta duga að sinni.

Lífiđ er ekki alltaf tóm hamingja!

09. apríl 2011 klukkan 21:02
Það er svo undarlegt að á mánudeginum var ég með blússandi sjálfstraust. Skapið mjög gott og tilhlökkun að komast í tíma hjá þjálfara í ræktinni. Sá tími var mjög góður og ekki hægt að kvarta neitt yfir því. Ég var með það mikið sjálfstraust að á undan tímanum fór ég út að hlaupa og ætlaði mér að æfa mig tvisvar á dag á meðan ég væri ekki í vinnu. Þegar ég svo vakna á þriðjudeginum finn ég hvað ég er þungur á mér. Vanlíðan var mikil og ég fann strax að sjálfstraustið væri komið í frumeindir sínar. Þunglyndið hafði tekið völdin hjá mér þennan dag er ég vaknaði. Allt virkaði svo svart, ómögulegt, tilgangslaust og mig langaði bara til að vera upp í rúmi og sofa sem mest. Dagurinn leið svona í móðu en ég hafði það þó af að koma mér í gítarnámið. Eftir það fann ég hvað ég var orkulaus og rúmið gargaði á mig. Það sama var upp á teningnum daginn eftir. Fór í gítartíma en gerði ekki meira en það. Svo kom að ég var með nagandi samviskubit að hafa ekki hreyft mig á þriðjudeginum og ekki heldur á miðvikudeginum. Sem betur fer kom fimmtudagurinn! Þá fór ég í tíma hjá þjálfaranum í ræktinni. Hafði bara gott af því að komast út og vera í kringum fólk. Ég hresstist aðeins við þennan tíma og leið betur um kvöldið. Í gær átti ég mjög erfitt með að koma mér af stað í ræktina. Bæði nennti ég því ekki og enginn áhuga á hreyfingu. En sem betur fer tókst mér að tala sjálfan mig til. Því var úr að ég hljóp í klukkutíma og náði þar með 8,2 km sem ég var sáttur við. Undir venjulegum kringumstæðum hefði þessi dagur verði dagur langhlaups hjá mér. Ég fann enn að þunglyndið væri í mér en samt hafði ég af að fara um kvöldið í nemenda hitting og skemmta mér vel með þeim. Í dag vaknaði ég og rölti á vigtina. Hún sýndi að ég hafði farið upp í 97,9 kg en var bestur 95,4 fyrir þremur vikum. Helgina sem ég var fyrir sunnan þá borðaði ég mikið af brauðmat og það skýrir það að mestu hvað ég hef farið upp á við. Brauð og brauðmeti ásamt kökum eru bara eitur. Ég var ekki glaður með þessa tölu sem þýðir að ég þarf að laga ýmislegt. Það verður gert vonandi sem fyrst og þá þarf ég að vera búinn að ná mér af þessu árans þunglyndi sem er að herja á mig. Því ef hausinn er ekki í lagi þá gengur ekkert hjá manni, þannig er það bara og er. Það sem ég get glaðst yfir er að ég náði þó að hlaupa 20.2 km og komast í 2 tíma til þjálfara míns. Nú svo þarf ég að koma inn myndum af mér fljótlega svo þið getið séð hvernig ég er í dag. Reyndar er ég ennþá hin mikla myndavélafæla og held að það verði eitthvað áfram. Mér finnst ég alltaf vera svo asnalegur á myndum. Ég var að velta því fyrir mér um daginn að fá mér jakkaföt. Ég hef aldrei átt svoleiðis föt. En þegar ég fór að hugsa meira um þetta þá fór ég að hugsa um hvað þau gætu kostað. Þá kom bakþankar í þau mál hjá mér og ég verð bara að hugsa um þetta í rólegheitum. Ég hef enn tíma því ég myndi ekki nota þau fyrr en í júní. En núna er ný vika framundan og það er markmið að ná af sér 0,1 til 0,3 kg af núverandi tölu. Betra er að fara hægt niður á við og halda því en að fara of geyst og fá það til baka eins og gerðist hjá mér um daginn! Núna ætla ég að semja hernaðaráætlun um það hvernig ég tækla mín mál næstu vikuna svo ég geti farið niður á við aftur! Ég skal komast í 92 kg, ég ætla mér að komast niður í 92 kg og ég mun komast í þá tölu einn daginn. Hann bíður en hvort það er við næsta horn er svo stóra spurningin! Jæja ég ætla núna að setjast niður fyrir framan sjónvarpið og horfa aðeins á masterinn í golfi. Vona að það verði spenandi mót! Hafið það gott og endilega kvittið í gestabókina hjá mér. Það myndi gleðja mig mikið! Takk fyrir mig!

Seint hjá mér bloggiđ!

02. apríl 2011 klukkan 23:37
Ég tók þá ákvörðun að sleppa að vigta mig þennan laugardag! Ástæðan er sú að ég er fyrir sunnan og mín vigt situr eftir heima. En næsta laugardag mun ég að sjálfsögðu vigta mig. Vikan var ekki nógu góð hreyfingarlega séð. Tvö hlaup í vikunni. 2 km sem voru í ræktinni fyrir lyftingar og svo 9 km sem ég hljóp úti. Ég fór reyndar í sund í dag og synti 500 metra á 17 mínútum! Nú er skólinn búinn svo ég get einbeitt mér að hreyfingunni og komið betra horfi á matarmálstíma mína. Svo er ég búinn að skipuleggja hreyfinguna fyrir næstu viku. Það verður gott að komast aftur tvisvar í viku til þjálfara míns þennan mánuð áður en hann heldur á vit ævintýra í pulsuheiminum! Svo get ég farið að æfa mig meira á gítarinn og verið tilbúinn til að takast 1 stigið í klassískum gítarleik! Hlakka til að geta tekið meira í strengina og spilað lög. Svo það verður vonandi gaman næstu daga hjá mér!

Upp núna!

26. mars 2011 klukkan 21:18
Eins og oft vill verða hjá mér þegar ég tek af mér meira en 0,3 kg þá fer það yfirleitt á þann veg að í næstu vigtun þá fer ég upp á við. Fyrir mér er þetta orðin regla því það skeði einmitt í dag að ég fór upp á við. En á 0,3 inni. Ég veit hvað er að og það lagast um leið og skólanum líkur. En það er vont að borða á öðrum tímum en maður er vanur. Svo hefur maður verið að leyfa sér meira en góðu hófi gegnir. Hreyfingin var fín og hátt í 30 km hlaupnir þessa 3 daga sem fóru í hlaup. Ég fór á föstudeginum og synti 0,5 km og fannst það bara geta mér gott. Kannski átti ég að synda meira fyrst ég var í góðum gír. En er ekki alltaf best að hætta á toppnum? Nú þarf ég að stokka upp spilin og leggja þau niður aftur og finna út hvernig ég get náð þessu 1,2 kg til baka. En ég hlýt að finna leið eins og venjulega. Svo þegar skólanum líkur ætla ég að bæta við mig lyftingum og hafa fasta tvo daga í því og 3 daga í hlaup og 1 dag í sund og 1 dag í frí ef allt gengur eins og ég legg það upp. Það væri gaman að fá athugasemd við bloggin mín frá þér eða að þú kvittaðir í gestabókina! Takk fyrir lesturinn!

he he á vigtinni!

19. mars 2011 klukkan 13:04
Á mánudaginn var enginn skóli svo ég fór í ræktina. Ég hljóp í 20 mínútur og gekk svo í tvær. Endurtók það aftur og gekk svo síðustu tvær mínúturnar. Ég fann verk í fætinum svo ég ákvað að hafa þetta kerfi á. Samt sem áður skilaði ég 8,7 km þennan dag og var bara sáttur. Á miðvikudaginn hljóp ég 8 km og hlaupahraði allan tímann 9,2. Á fimmtudag féll niður skóli einu sinni enn og þá var ákveðið að fara í ræktina að hlaupa. Þar hljóp ég 16 km á 1:44:22 sem er besti tími sem ég hef náð og 1710 he brennd. Sem er það mesta sem ég hef séð. Daginn eftir fór ég í sund. Ég er farinn að gera það eftir svona löng hlaup. Ég synti bara 0,5 km á 17 mín og fannst það bara gott. Ég fann fyrir svöðusárum þegar ég var að synda sem ég fékk í langa hlaupinu deginum áður. En ég lét það bara ekki á mig fá. Svo var ég búinn að ákveða að fara í heita pottinn og flatmaga þar um stund. En! Minn maður gleymdi sér eftir sundið og fór uppúr og beint í heita og notalega sturtu. Það sem eftir lifði dagsins reyndi ég að vera passa samur í mataræðinu því það beið mín vigtunar dagur daginn eftir. Í dag þá fór ég á þessa blessuðu vigt. Síðast þegar ég fór var ég 96,9 kg og hafði farið upp á tveimur vikum um 0,5 kg sem mér fannst súrt í broti. Ég ætlaði aldrei að trúa þeirri tölu sem ég sá í morgun. Ég hélt fyrst að það væri eitthvað að minni sjón. En ég vissi að hún væri í lagi. Ég trúði ekki vigtinni fyrr en kisi kom og sá þessa sömu tölu. Talan sem kom upp í morgun er 95,4 sem þýðir að ég hef náð af mér 1,5 kg sem er of mikið því ég fer örugglega upp aftur. En! Þetta þýðir að það er 3,4 kg í draumatöluna. Ég tel þetta hafi komið af því að ég breytti aðeins í matarmálum mínum, fór að borða meira jógúrt í stað hleðslu sem er próteindrykkur. Ásamt því að forðast brauð eins og heitan eldinn. Minnkaði að fá mér þrúgusykur og minnkaði próteinstangarát. Drakk meira af vatni. Já og hætti að éta mola með kaffinu en ég hafði prufað það undanfarið en fann samt sem áður að það var ekki gott. Þannig að ég er bara sáttur með allt saman og nú er bara að halda áfram á sömu braut.

Vigtun og sund!

12. mars 2011 klukkan 17:44
Í gær fór ég í ræktina og ákvað að reyna að hlaupa eins langt og hægt væri. Því ég hafði tognað á miðvikudeginum og vissi ekki hvað ég kæmist langt. En sem betur fer tókst mér að ljúka 16 km. Ég fann lítið sem ekkert til í náranum en ég fann að síðasti km var erfiður! Ég náði að hlaupa þessa 16 km á 1:45:31 og bæta mig um 1:11 sem mér fannst bara gott. Brennslan var mjög há eða 1697 he. Ég teygði svo extra vel á þeim stað sem tognunin varð á miðvikudeginum. Ég var mjög glaður að ná að klára þetta hlaup því ég taldi eins og staðan væri að ég myndi ekki ná þessu. En ég held að það hafi gert gæfumuninn að ég hætti strax þegar ég fann fyrir eymslum á miðvikudaginn og hvíldi mig eins vel og hægt var. Auk þess sem ég nuddaði svæðið eins og ég gat. Í dag fór ég á vigtina. Ég var ekki ánægður með hana enda stundum er það svo að samband okkar er ekki gott. Ég fór upp um 0.2 kg og því hef ég farið upp á tveimur vikum um 0,5 kg. Sem er ekki gott. Eftir vigtunina ákvað ég að hugsa um það sem ég taldi hafa misfarið hjá mér. Ég þarf að taka til í mínum ranni eins og sagt er. Það sem er líka slæmt að ég kemst ekki daglega í hreyfingu út af skólanum. Þegar ég kemst ekki í hreyfingu verð ég fúll og á erfiðara með að halda mér á strikinu í matarmálunum. Svo það er ekki nema von að mér er farið að hlakka til að losna við þennan skóla. Í raun og veru átti ég ekki að fara í hann heldur einbeita mér að því að klára dæmið með sóma. Í maí lok stefni ég á að vera kominn í 92 kg sem er draumatalan. Ef ekki langar mig að vera kominn í þessa tölu í október en þá eru 5 ár frá því að ég byrjaði að taka á þessum málum mínum. Það væri líka gaman að klára í þessum mánuði því þá byrjaði ég hjá mínum einkaþjálfara sem ég er enn hjá. Ég fór svo í sund í dag. Synti 0,5 km og mér leið bara vel í vatninu. Ég var 17 mínútur með þessa lengd og er sáttur með tímann. Síðan kíkti ég í pottinn og fór svo eftir það í heita og notalega sturtu. Hvernig væri nú að kvitta í gestabókina eftir lesturinn? Það er svo langt síðan síðasta kvittun kom! Ég ætla að halda áfram að njóta dagsins því framundan verður strembin vika! Hafið það gott!

Smá meiđsli!

10. mars 2011 klukkan 15:31
Í gær fór ég í ræktina. Öll hlaupabretti voru upptekin. Svo ég fór á eitt hjólið sem er þarna. Ég spáði ekki í neinum stillingum og byrjaði bara að hjóla. Ég fór svo að fikta í stillingum sem stilla erfiðleikastigið. Eftir 5-6 mínútur í þessum barningi losnaði eitt hlaupabrettið. Ég fór á það og byrjaði að hlaupa. Eftir einhvern tíma finn ég að það er eitthvað að angra mig í vinstri fótinn. Eftir 1 km hlaup þá gekk ég 200 metra og þá angraði þetta mig minna. Ég hljóp svona upp í 5 km með göngum inn á milli. Á meðan þetta gerist fann ég meira fyrir þessu og þá varð mér ljóst að þetta kæmi úr náranum sem leiddi niður í fótinn. Einnig fann ég verk í vinstri rasskinn! Ég teygði á og fann að það var gott svo ég endurtók teygjuæfinguna. Ég fann fyrir verknum þegar ég gekk og fannst þetta skrýtið og taldi ég að um tognun í nára gæti verið. En ég tel að það hafi komið út frá hjólinu. Það var svekkjandi að hætta eftir 5 km en ég taldi það best og taka hvíld daginn eftir. Með þá von að þetta myndi lagast svo ég gæti tekið stóra hlaupið á föstudeginum. Í morgun fann ég ekkert og gladdist ég yfir því en svo fór ég að finna aftur fyrir þessum verkjum en ekki eins mikið og í gær. Ég ætla mér samt að hlaupa á morgun og þá reyni ég að hlaupa eins langt og ég get miðað við ástandið sem þá verður. En ég er feginn því að ég hlustaði á líkamann í gær. En yfirleitt lem ég mig bara áfram með hugann sem vopn á líkamann en í þessu tilfelli lét ég skynsemina ráða! En ég viðurkenni það fúslega að ég er enn svekktur yfir þessu. En það fer minnkandi sem betur fer!

5.3.2011

05. mars 2011 klukkan 17:40
Á mánudeginum hljóp ég aðeins 5 km á rólegum hraða. En naut þess að jogga þessa km. Á miðvikudaginn fór ég út að hlaupa. 8 km voru lagðir og meðalhraðinn var 9,0 og mesti hraðinn var 10,5. Bara sáttur með það! Á föstudaginn er stór hlaupadagur. Þennan föstudag hljóp ég 16 km á tímanum 1:46:42 og allan tímann var ég á hlaupahraða 9,0 í ræktinni. Í morgun fór ég á vigtina. Því miður skeði það að ég fór upp um 0,3 kg. En þetta er allt í lagi ég ætla að ná þessu til baka. Ég veit upp á mig skömmina hvað ég gerði. Það sem fór úrskeiðis verður lagað og hefst sú vinna frá og með miðnætti í kvöld. Þetta þýðir að ég á 4,7 í draumatöluna en ég næ henni. Með góðu eða illu. Svo fór ég í sund í dag til að hressa mig við. Ég synti 0,5 km á 16 mínútum og bætti mig um 1 mínútu frá því síðast. Samt var ég ekki að synda á mínu hraðasta tempói. Synti frekar jafnt! Það er svo skrítið að ef ég fer upp á við þá eru viðbrögð þeirra sem ég sendi SMS frekar dræmar. Svo ef ég fer niður á við þá hefur maður ekki undan því að taka á móti hamingjuóskum. Því spyr maður stundum sjálfan sig hvort það sé ekki bara best að hætta þessum sendingum og þá sérstaklega þegar vigtin fer upp á við? Annars er ég ekkert að velta þessu mikið fyrir mér. En ég hef tekið eftir þessu. Næsta vika verður strembinn. Tveir stærðfræðitímar og einn enskutími. Mér finnst enskan vera skást af þessum tveimur fögum. En það verður gott þegar þessi mánuður er búinn því þá er skólinn búinn og ég loksins FRJÁLS! Þá fer ég að æfa mig meira og lyfta meira. En þar sem ég er að æfa hlaup þá ganga þau fyrir en ekki lyftingar. En strax í apríl ætla ég að lyfta meira og leggja áherslu á efri og neðri hluta líkamans. Þetta mun koma mér til góða bæði golfsins vegna og hlaupsins.

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvort er betra?

Til minnis!

Nćsti hittingur er 25 september 2009 kl 10 f.h.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari